Styttist í Bítlatónleika!

Nú eru einungis tvær vikur í Bítlatónleika Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands sem verða haldnir sunnudaginn 13. maí klukkan 20:00 í íþróttahúsinu Iðu.
Kórinn, undir styrkri handleiðslu Stefáns Þorleifssonar, hefur nýtt síðustu tvo laugardaga í æfingar með Gunna Óla, Labba og hreint út sagt frábærri hljómsveit skipaða þeim Árna Þóri Guðjónssyni, Trausta Erni Einarssyni, Róberti Dan Bergmundssyni og Stefáni Ingimari Þórhallssyni.
Þær æfingar hafa gengið eins og í sögu og má segja að hálfgert bítlaæði hafi gripið um sig í hópnum. Kórinn er nú þegar orðinn ástfanginn að “Drive my car” og ljóst að þessir tónleikar munu óma af gleði og bítlafíling! Domino's hefur séð kórnum fyrir pizzum á æfingum. Hljóð og ljósakerfi á tónleikunum verður frá EB-kerfi og ekkert til sparað að gera þessa tónleika sem glæsilegasta. Miðasalan er byrjuð í TRS og á trs.is. Einnig er hægt að kaupa miða af kórfélögum. Þessir tónleikar eru fyrir fólk á öllum aldri og ætti enginn að missa af þeim.
Þetta er í annað sinn sem Kór FSu ræðst í svo stóra tónleika. Árið 2008 tókust kórfélagar á við tónlist hljómsveitarinnar Queen með Magna Ásgeirsson, Heru Björk Þórhallsdóttur og Eirík Hauksson sem sólóista.

Á myndinni má sjá hluta kórfélaga í góðri bítlasveiflu, Gunni Óla stakk sér inn í hópinn og söng með.