Stuð á starfsbraut

Tónlistarhópur starfsbrautar brá sér á leik í dag og greip í hljóðfærin í kennslurými Tónsmiðju Suðurlands. Eyrún Jónasdóttir, tónlistarkennari sagði að nemendur hefðu leikið við hvern sinn fingur og fengið mikla útrás í hljóðfæraleiknum. Á meðfylgjandi mynd má sjá þrjá upprennandi rokkara rokka feitt!  Á myndinni eru frá vinstri:  Ólafur Aron Einarsson, Eiður Atli Magnússon og fyrir aftan er Magnús Smári Kristinsson.