Stubbaknús í hús

Skólinn fylltist af syngjandi rauðum, grænum, fjólubláum og gulum Stubbum síðastliðinn föstudag. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. Stubbarnir stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Nú er próflestur tekinn við, en um 117 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann. Brautskráning vorannar fer fram miðvikudaginn 28 maí og hefst kl. 14.