Steinastjórnin

Ný stjórn starfsmannafélagsins, Steinastjórnin, er komin til starfa undir forystu Brynhildar Geirsdóttur. Fyrsta embættisverk stjórnarinnar var að afhenda afmælisgjafir starfsmönnum sem áttu stórafmæli í sumar. Gjafirnar, sem stjórnin kennir sig jafnframt við, eru steinakarlar unnir af Sigurði Jónssyni á Selfossi. Framundan er haustganga hjá starfsmannafélaginu og ýmis önnur upplyfting.