Stefnir allt í fár í ár?

Já! Það lítur út fyrir það: Flóafár! Það verða 6 lið í ár: Liðsstjórar hafa nú fengið nafnalista og fá að safna 50 keppendum í sitt lið fram á mánudag. Ekki missa móðinn þó þið komist ekki í 50 manna hópinn, því flóafársnefnd tekur þá við og skiptir þeim nemendum sem eftir verða, jafnt á liðin. Á miðvikudagsmorgun verður komið á hreint hver er í hvaða liði og þann dag klukkan 11.00 funda liðsstjórar með sínum liðum og leggja á ráðin til að sigra heiminn... ?  Alla vega styttuna góðu og pizzaveisluna! Á myndinni má sjá sigurlið síðasta árs gæða sér á vinningspizzu.