Snæfell stal sigrinum

FSu tapaði naumlega fyrir Sæfelli á fimmtudagskvöldið í æsispennandi leik, 67:68. FSu átti á brattann að sækja í fyrri hálfleik en náði að vinna upp muninn þegar leið á leikinn. Liðið var með 1 stigs forystu þegar 3 sekúndur voru eftir af leiktímanum og Snæfell fékk innkast. Þessar sekúndur voru hins vegar af lengri gerðinni og Hólmarar fengu að skora stigin 2 sem þurfti til að vinna leikinn. Nánar á kki.is.