Skáldaganga

Hin ráðagóða stjórn Starfsmannafélags FSu gekkst fyrir skáldagöngu í Hveragerði sl. föstudag. Leiðsögumaður var skáldið Pjetur Hafstein Lárusson sem tekið hefur saman bók um Hveragerðisskáldin. Eftir að gengið hafði verið um skáldahverfi bæjarins og hús skáldanna vegin og metin var haldið á Kjöt og kúnst þar sem dýrindis kvöldverður var snæddur.