Skálafell sigrað

Laugardaginn 4. apríl gekk fjallgönguhópurinn í FSu á Skálafell á Hellisheiði. Að þessu sinni voru í hópnum, sem samanstóð af Íslendingum og Kanadabúum, 35 tvífætlingar auk þriggja hunda. Næsta ganga verður farin 18. apríl og þá á að leggja hið sögufræga fjall Vífilsfell að velli.