SJÚKRALIÐAR OG SORGARVIÐBRÖGÐ
10.06.2025
Þrettánda maí síðastliðinn fór vaskur hópur nemenda af sjúkraliðabraut skólans gangandi og í góðum gír að hitta Guðbjörgu Arnardóttur sóknarprest í Selfosskirkju til að fræðast um sorg og sorgarviðbrögð. En fagleg nálgun og persónuleg nánd er afar mikilvæg á þessu viðkvæma tímabili í lífi hvers einstaklings. Um er að ræða útskriftarhóp nemenda sem lokið hefur bóknámi en á eftir tólf vikna starfsnám og brautskráningu um næstu jól. Áður höfðu nemendur kynnt sér efnið undir handleiðslu Írisar Þórðardóttur hjúkrunarfræðings og kennara við skólann.
Að lokinni heimsókn í kirkjuna og eftir flottan fyrirlestur og spjall var gengið upp með Ölfusá á Kaffi krús þar sem veturinn var kvaddur og þakklæti iðkað.
íþ / jöz