Sigursveinn leysir af sem skólameistari

Sigursveinn Sigurðsson starfandi skólameistari FSu skólaárið 2018-2019.
Sigursveinn Sigurðsson starfandi skólameistari FSu skólaárið 2018-2019.

Sigursveinn Sigurðsson verður starfandi skólameistari skólaárið 2018-2019 í fjarveru Olgu Lísu Garðarsdóttur, sem er í námsleyfi.

Sigursveinn hefur starfað við FSu frá árinu 2006. Hann hefur kennt spænsku auk þess að vera sviðsstjóri tungumála og félagsgreina. Hann hefur, auk spænskunáms, lokið M.Ed. námi frá St. Francis Xavier University í Kanada. Þá hefur hann stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.