Sigur í körfunni

FSu-liðið í körfu vann góðan sigur á Breiðabliki í Smáranum á föstudagskvöldið, 77:96. Liðið náði góðu forskoti í 2. leikhluta og hélt því til leiksloka. Sigurinn fór langt með að tryggja áframhaldandi veru FSu í úrvalsdeildinni.