Sigur á framhaldsskólamóti

Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum fór fram laugardaginn 26. mars í reiðhöllinni Harðarbóli í Mosfellsbæ. Þar voru 5 keppendur frá FSu sem stóðu sig frábærlega og unnu stigakeppni skólanna. Fyrirkomulag mótsins var með því sniði að keppt var í 3 greinum, tölti, fjórgangi og fimmgangi. Aðeins 3 keppendur mega fara í hverja grein frá hverjum skóla. Keppendur í tölti og fjórgangi voru hátt í 40 en í fimmganginum voru 24 keppendur.

Haldin var úrtaka hjá FSu fyrir framhaldsskólamótið þar sem eftirfarandi keppendur komust áfram með sína hesta: Arnar Bjarki Sigurðarson og Rakel Nathalie Kristinsdóttir, sem kepptu í öllum greinum, Edda Hrund Hinriksdóttir í tölti, Birgitta Bjarnadóttir í fjórgangi og Ragnheiður Hallgrímsdóttir í fimmgangi. Töltið vann Arnar Bjarki og Edda endaði í 4 sæti. Í fjórganginum var Arnar Bjarki í 2. sæti og í 10. sæti. Fimmgangurinn fór svo að Ragnheiður endaði í 1. sæti, Rakel í 3. sæti og Arnar í 4. sæti. Stigahæsti keppandi mótsins varð svo Arnar Bjarki Sigurðarson.