Samstarf við grunnskóla Árborgar

Miðvikudaginn 28. janúar fóru þau Ása Nanna Mikkelsen áfangastjóri, Þórarinn Ingólfsson aðstoðarskólameistari og Örlygur Karlsson skólameistari  á fund með framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs Árborgar Ragnheiði Thorlacius, verkefnisstjóra fræðslumála Sigurði Bjarnasyni og skólastjórnendum grunnskólanna í Sveitarfélaginu Árborg. Rætt var um ný inntökuskilyrði í FSu og samstarf grunnskólanna í Árborg  og FSu.