Rakel í Eurovision

Rakel Magnúsdóttir íþróttakennari og Eurovisionstjarna stígur á sviðið í undankeppni sjónvarpsins fyrir Eurovision næstkomandi laugardag. Rakel skipar sönghópinn ELEKTRA ásamt Hildi systur sinni og fjórum öðrum stelpum. Varla þarf að hvetja Sunnlendinga til að styðja sitt fólk í keppninni, enda löngu tímabært að FSu geri aðra tilraun til að hreppa þennan titil.