Rafrænar töflubreytingar

Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum þurfa nú að óska eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, mánudaginn 6. janúar milli 10:00 og 13:00. Nemendur sjá síðdegis eða undir kvöld hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.

Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða s.s.

   a) ef nemandi er með of fáar eða of margar einingar í töflu

   b) að forsendur hafi breyst t.d. vegna falls í áfanga

Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.

Nemandi sem hyggst bara hætta í áfanga en ekki fá annan í staðinn getur gert það með því að fylla út eyðublað á skrifstofu skólans strax í upphafi annar.

Útskriftarnemendur

Nemendur sem hyggjast útskrifast í maí eru beðnir um að skrá sig til viðtals við áfangastjóra á eyðublað sem hangir á skrifstofuhurð hans.