RAFMÖGNUÐ NÁMSFERÐ
29.04.2026
LANDSVIRKJUN – orkufyrirtæki í eigu þjóðarinnar – eins og segir á heimasíðu - bauð rafvirkjanemendum FSu í heimsókn síðasta vetrardag 22. apríl síðastliðinn. Nemendur á annarri og fjórðu önn fóru með rútu að Írafossstöð og fengu fræðslu um starfsemina sem þar fer fram og í kjölfarið var farið í skoðunarferð um stöðina.
Rafmeistararnir og kennararnir Jón Sveinberg Birgisson og Guðmundur Bjarnason frá Túni í Flóa leiddu hóp nemenda og töldu þetta rafmagnaða námsferð. Myndirnar tala sínu máli.
jsb / jöz







