RAFMAGNSDEILDIN Á ÞÝSKRI LJÓSAHÁTÍÐ

Rafmagnsdeild FSu gerir það ekki endasleppt í vettvangsferðum og tækninýjungum því þann 7. til 11. mars síðastliðinn fóru fjórir kennarar ásamt níu nemendum á alþjóðlegu sýninguna Light&building sem haldin er annað hvert ár í Frankfurt í Þýskalandi.

Sýningin er sú stærsta á sviði rafurmagns og ljósa og samkvæmt upplýsingum frá sýningarstjórum komu að þessu sinni tæplega 150 þúsund gestir frá 143 löndum. Sýningarsvæðinu er skipt í tólf aðskilin rými og er í heildina um 250 þúsund fermetrar.

Skoða má allar nýjustu uppgötvanir og framleiðslu á rafbúnaði og efni tengd faginu eins og ljósum, tenglum og verkfærum svo nokkuð sé nefnt. Íslensku heildsölurnar bjóða upp á skipulagða dagskrá á sýningunni til að kynna sína birgja. Að sögn kennaranna Jóns Sveinbergs Birgissonar og Þórs Stefánssonar heppnaðist ferðin framar vonum – og með þeirra orðum „varð allt gegg bæði faglega og ferðalega.”

jöz / jsb