RAFMAGN OG FABLAB TIL FRAKKLANDS

Fjórir RAF kennarar FSu hleyptu heimdraganum og fóru í námsferð til Frakklands 17. til 23. mars síðastliðinn. Þór Stefánsson kennari í rafiðn - sem á lengstan starfsaldur núverandi kennara við FSu, Jóhann Snorri Bjarnason fagstjóri rafniðngreina við FSu og rafkennararnir Jón Sveinberg Birgisson og Guðmundur Bjarnason kenndur við bæinn Tún í Flóa. Auk þeirra fylgdi kerfis- og vefstjórstjóri FSu – og FAB LAB meistari Magnús Stephensen Magnússon.

Tilefnið var að gjalda heimsóknar franskra nemenda og kennara til FSu frá liðnum vetri en um leið að gæta að framþróun í kennslu rafmagns- og FAB LAB fræða.

Skólinn sem sóttur var heim heitir Lycée des Métiers Jean Dupuy og er staðsettur í bænum Tarbes í suðvestur hluta Frakklands. Tólf hundruð nemenda skóli sem leggur sérstaka áherslu á starfs- og tækninám. Að sögn Jóns Sveinbergs Birgissonar er skólinn „afar vel tækjum búinn og virkilega áhugavert að skoða námsframboð og aðferðir við kennslu.”

Stefnt er að faglegu og virku sambandi milli skólanna - að franskir nemendur komi í heimsókn í FSu sem sé síðan endurgoldinn með franskri námsferð.

 

jsb / jöz