Queen og Gunni Þórðar

Starfsemi kórs FSu er blómleg að vanda undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Næsta verkefni kórsins er Queen-tónleikar í Reykjavík um næstu mánaðamót og eru æfingar að hefjast fyrir þann viðburð. Eftir þá tónleika fer kórinn að vinna með lög eftir Gunnar Þórðarson, gömul Hljómalög og fleira í þeim dúr. Stefnt er að því að halda Gunna-Þórðartónleikana í Iðu í vor.