Prófsýning í dag

Í dag, miðvikudaginn 25. maí, er prófsýning kl.12.30 -14.00. Nemendur eru hvattir til að hitta kennara, skoða prófin sín og sækja verkefni. 

Inna hefur nú þegar opnað og þar geta nemendur skoðað einkunnir sínar þar. Inna verður lokuð þeim sem eiga útistandandi gjöld á vorönn.

Föstudaginn 27. maí er brautskráning sem hefst kl.14. Gestum er boðið upp á kaffi og meðlæti eftir athöfn.