Próflok í nánd

Prófum fer nú senn að ljúka í FSu. Þau hafa staðið síðan mánudaginn 4. maí og síðstu prófin verða fimmtudaginn 14. maí. Daginn eftir, föstudaginn 15. maí, taka við sjúkrapróf. Um 15.700 einingar eru lagðar undir á önninni og þriðjudaginn 19. maí kemur í ljós hvernig til hefur tekist því þá verða einkunnir afhentar og próf sýnd.