Óvissuferð

Nemendur í íþróttaakademíum skólans fóru saman í óvissuferð í liðinni viku. Akademíunum var skipt í þemahópa þvert á íþróttagreinar og mátti sjá klappstýrur, sjóræningja, kúreka, ofurhetjur og fleiri stíga upp í rútu til Reykjavíkur. Þegar þangað var komið var farið í Kórinn, íþróttahús í Kópavogi þar sem farið var í leiki. Dagurinn endaði svo í Skemmtigarðinum þar sem farið var í litbolta og pizzapartý.