Opið er fyrir umsóknir á vorönn 1.-30. nóvember

Innritun fyrir vorönn stendur yfir dagana 1.-30. nóvember fyrir þau sem ekki stunda nám í skólanum á þessari önn.

Umsókn um framhaldsskóla fer fram á innritun.is en þar eru einnig allar upplýsingar um innritun.

Umsækjendur sem vilja skrá sig í kór og/eða eina af íþróttaakademíum FSu geta tekið ósk sína fram í athugasemd við umsóknina. Sjá nánar um akademíurnar hér: https://www.fsu.is/is/namid/akademiur. Athygli er vakin á að golfakademían er í boði á næstu önn.

Frekari upplýsingum um námsframboð skólans er að finna hér á vef FSu.