OG SVO ÞURFTI LÍKA AÐ MUNA AÐ ANDA
Dagana 9. - 13. apríl síðastliðinn lögðu nemendur FSu og kennarar í DANS3KF05 land undir fót og heimsóttu Kaupmannahöfn. Um valáfanga er að ræða á þriðja þrepi dönskunámsins og fjallar um danskar kvikmyndir, ferðalag og skáldsagnalestur. Að sögn Idu Lön kennara var undirmarkmiðið að þjálfast í að nota danskar almenningssamgöngur og kynnast viðurkenndri menningu og óskrifuðum dönskum reglum. Auk þess var fetað í fótspor annarra og eldri ferðalanga til að skapa eigin upplifun.
Heimsóttir voru tveir skólar. Annar var Johan Borups Højskole sem er staðsettur í hjarta Kaupmannahafnar - á móti danska þinginu í Christiansborg. Skólinn er lýðháskóli með um 100 nemendur og býður upp á nám í tengslum við skapandi greinar.
Þó Borups sé lýðháskóli er heimavist ekki í boði en að öðru leyti fúnkerar hann sem heimili með allskonar notaleg og misstór rými dreifð á fimm hæðir. Húsið var áður stórhýsi fursta og byggt um miðju 17. öld. Skólinn var hins vegar stofnaður árið 1891 og átti þá eins og nú að „aðstoða dömur og herramenn stórborgarinnar að finna sig í nútímanum í gegnum sköpun, söng og samveru.”
Hinn heimsótti skólinn var viðskiptaháskólinn Copenhagen Business School á Frederiksberg. Hann er með beina neðanjarðarlestartengingu inn á campus og á milli 20 og 23 þúsund einstaklingar stunda þar nám. Tilgangur skólans er rammaður inn með orðunum: „We transform society with business“ og áhersla lögð á frama og velgegni. Öflugt rannsóknarstarf á viðskiptatengdum sviðum fer fram í þeim skóla.
Til fróðleiks má nefna að í undirbúningi ferðarinnar fengu FSu nemendur ýmsa möguleika þegar kom að því að velja skóla af því að hvorki meira né minna en um tuttugu skólar sýndu FSu nemendum áhuga.
Auk skólaheimsóknanna var farið í Tivoli og út að borða á Pinchos sem er smáréttastaður á Axeltorgi sem auðvelt er að mæla með. Þá var tekinn Hafnarstrætó frá Det Kongelige Bibliotek og út á endastöðina Teglholmen með viðkomu á Islands Brygge og Knippelsbro. Á bakaleiðinni var svo áð í dagverði í Nyhavn. Að lokum má nefna að Havnebussen er ódýr sigling sem hægt er að mæla með og sérlega þægilegur útsýnis- og ferðamáti. Þar mátti sjá konu taka sér pásu frá púlserandi lífi stórborgarinnar og gefa ungabarninu sínu brjóst.
Nemendur sáu um allt skipulag þessarar námsferðar: verðkannanir, símtöl, akstur í Leifsstöð, sameiginlegan kvöldverð, flugpantanir og hótelpantanir og hafa samband við og sjá um samskipti við skólana svo nokkuð sé nefnt. Nemendur báru ábyrgð á staðsetningu og tímaákvörðunum frá upphafi ferðar til enda þess og sáu einnig um leiðsögn með aðstoð Sigríðar Guðmundsdóttir dönskukennara um órannsakanlegi vegir Erasmus+ enda var ferðin að öllu leyti fjármögnuð af Evrópusamstarfi í menntamálum.
OG SVO ÞURFTI LÍKA AÐ MUNA AÐ ANDA.
Í ljós kom að nemendur réðu fullkomlega við að skipuleggja, framkvæma og anda ofan í þind. Hvernig má það vera betra? segir Ida Lön að lokum – sposk á svip af áhuga og reynslu.
il / jöz







