Nýstárleg jólaljós

Nú er tími jólaskreytinganna í hámarki. Sýnir fólk mismikla hugkvæmni í skreytingum sínum; sumir fara troðnar slóðir meðan aðrir fitja upp á nýjungum. Dæmi um hið síðarnefnda má nú sjá í Odda. Þar hefur verið sett upp jólatré sem eingöngu er skreytt og lýst upp af gáfnaljósum. Þeim sem vilja upplifa litasamsetningu og ljósmagn er bent á að tréð er rétt austan við afleggjarann að Bollastöðum.