Nýr vefur og kynningarrit um nýjar námsskrár

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla. Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og framhaldsskólanemenda. Blaðið má nálgast hér. Þá hefur einnig verið opnaður nýr vefur namtilframtidar.is, þar sem veittar eru upplýsingar um námsskrárnar, áherslur í menntamálum og fleira.