Nýr vefur FSu


Nýr vefur skólans var tekinn í notkun 5. janúar. Öll vinna við uppfærslu og viðhald þessa nýja vefs á að vera auðveldari en þess fyrri.

Mikil vinna liggur í nýja vefnum, en hann er alfarið unninn af starfsmönnum skólans, þeim Helga Hermannssyni, Kristínu Runólfsdóttur og Ragnari Brynjólfssyni, í hinu opna joomla-kerfi og vistaður innan veggja skólans. Þannig sparast fjármunir og fyrirhöfn þegar fram líða stundir.