Nýr skólameistari tekinn til starfa

Olga Lísa Garðarsdóttir tók formlega við lyklavöldum af Örlygi Karlssyni í gær.

Örlygur hefur verið skólameistari við FSu frá árinu 2008, en hann hefur starfað við skólann samfleytt í rúma þrjá áratugi. Olga Lísa var áður skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað.

Olga Lísa ávarpaði hóp starfsmanna við skólann af þessu tilefni og kom fram í máli hennar að hún hlakkaði til þess að takast á við nýtt starf og að hún tæki við góðu búi.

Netfang Olgu er olgalisa@fsu.is. Myndina tók Magnús Hlynur Hreiðarsson.