Nýnemar mættir og kennsla hafin

Nýnemar fjölmenntu á nýnemadag í upphafi haustannar.
Nýnemar fjölmenntu á nýnemadag í upphafi haustannar.

Nýtt skólaár er hafið af fullum krafti og á fimmtudag fylltist skólinn af kraftmiklum hópi nýnema sem tóku þátt í nýnemadegi. Á þessum degi mæta eingöngu nýnemar til leiks, þeir fá kynningu á innviðum, innra starfi og skipulagi skólans. Að auki taka þeir þátt í ratleik sem skipulagður er af stjórn nemendafélagsins og fá kynningu á starfi nemendaráðs. Á myndinni má sjá nýnema í byrjun dags þar sem skólameistari tók á móti þeim.