Nýnemaferð

Í liðinni viku var farið í nýnemaferð. Ferðin tókst afar vel, en skipulag hennar var alfarið á höndum mentorahóps FSu. Nokkur breyting hefur orðið á námsskrá, en frá og með haustönn 2015 þurfa allir sem hefja nám við skólann að taka þrjá áfanga á fyrsta þrepi sem nefnast Bragi, er þar verið að vísa í skólabrag. Bragaáfangar eru einingabærir áfangar sem hafa það að markmiði að efla samkennd og hópefli, kynna vel fyrir nemendum öll kerfi og þjónustu skólans, vinna að námstækni og góðum vinnubrögðum í námi og gera nemendur fulllfæra og sjálfbæra í námi þar sem þau byggja upp sinn námsferil. Hver árgangur skiptist niður á Bragakennara sem fylgja þeim eftir í 3 annir. Bragakennarar eru einnig umsjónarkennarar.Nýnemar í FSu fá sér pylsu

Hverjum hópi er svo úthlutað mentorum, sem eru eldri nemendur úr FSu, en þeirra hlutverk er að bjóða nemendur velkomna í skólann, ýta undir hópefli og samkennd í bekkjunum og styðja þau og styrkja. Nýnemar unnu að fjölbreyttum verkefnum á nýnemadegi

Nýnemaferðin var eins og áður sagði alfarið skipulögð af mentorahópnum. Farið var með rútum í Felagslund í Flóahreppi. Þar voru hóparnir saman að leysa þrautir, grilla pylsur og fara í leiki. Einnig voru haldnar kosningar um fulltrúa nýnema í nemendaráð, en 12 nemendur buðu sig fram sem er afar góð þátttaka. Haldnar voru framboðsræður og kynningar. Nemendur létu vel af ferðinni og létu ekki rok og rigningu hamla sér. Þrautirnar voru mjög fjölbreyttar, en meðal annars áttu hóparnir að hanna brúðarkjól úr eldhúsrúllum, búa til listaverk úti í náttúrunni, leysa reikningsdæmi, búa til sögur, hanna plakat og keppa í hindrunahlaupi.

Nýnemar í hópefliHóparnir geta unnið sér inn stig á önninni með þátttöku í ýmsum viðburðum á vegum skólans, með því að taka þátt í edrúpotti á skemmtunum skólans, mæta vel á fyrirlestra og ýmsu fleira. Til mikils er að vinna, en sá Bragahópur sem vinnur stigakeppnina á haustönn fær aðgangskort á alla viðburði nemendafélagsins á vorönn og haustönn 2016. Fleiri myndir úr ferðinni má sjá á fésbókarsíðu skólans.