Nýjar skólapeysur

Nemendafélag FSu hefur hafið sölu á sérstökum nemópeysum, merktum skólanum. "Peysurnar kosta 3.990 og eru í fyrsta sinn í boði í átta ár ef okkur reiknast rétt," segir Sigþór Jóhannsson, formaður NFSu. "Í fyrstu verður um að ræða tvo liti, hvítar og svartar en við erum að skoða aðra liti sem verða kynntir mjög fljótlega." Sigþór segir að skólapeysur séu sniðugar að mörgu leyti: þær séu góð auglýsing fyrir skólann út á við, geri nemendum kleift að kaupa föt á mjög góðu verði og auki á góðan skólabrag.