Nýjar körfur í Iðu

Að undanförnu hafa starfsmenn fyrirtækisins Sport-Tækni ehf. verið að setja upp nýjar og betri körfur í íþróttahúsinu Iðu. Körfurnar sem fyrir voru þóttu ekki nægilega traustar og spjöldin ekki góð. Strax í fyrsta leik eftir að körfurnar höfðu verið settar upp sigraði lið FSu lið Þórs á Akureyri með 10 stiga mun. FSu er nú í 7.-10. sæti deildarinnar með 12 stig.