Ný heimasíða NFSu

Nú á dögunum tók Nemendafélag FSu heimasíðuna sína í gegn. Nú er komið glæsilegt nýtt útlit með mörgum viðbótum á síðuna. Til dæmis er hægt að „læka“ og „kommenta“ á allt sem fer inn á síðuna með Smettuaðganginum sínum (Facebook öðru nafni). Það var hann Kristinn Svansson, nemandi í FSu, sem tók síðuna í gegn fyrir Nemendafélagið. Endilega kíkið inn á nýju síðuna og skoðið ykkur um.