Nemendur kynna áhugamál sín

Nemendur í lífsleikni hafa undanfarið verið að kynna áhugamál á opnu húsi. Þessar kynningar nemenda hafa verið mjög skemmtilegar og fjölbreyttar og fjölmargir komið við og kynnt sér sýninguna. Sem dæmi um  sýningarmuni má nefna hnakka, heypoka, bifreiðavélar, hand-, körfu- og fótbolta, plaköt með útskýringum, golfkylfur og margt fleira. Óhætt að segja að bæði nemendur og gestir hafi haft gaman af.