Námsráðgjafar í sviðsljósinu

Námsráðgjafar skólans kynntu starfsemi sína við kertaljós á kennarafundi sl. föstudag. Einnig var bryddað upp á fleiri nýjungum á fundinum, svo sem happdrætti þar sem vinningar voru ýmiss konar þjónusta í boði námsráðgjafanna. Í lok fundar var kynntur dagamunur sem verður í skólanum í næstu viku.