Námskeið og kynning á náms- og starfsráðgjöf FSu

Miðvikudaginn 11.janúar var kynning á þjónustu náms-og starfsráðgjafa fyrir nýja nemendur. Kynningin fór fram í fundargati í umsjón Álfhildar og Eyvindar náms-og starfsráðgjafa.

Sama dag  var fyrsta námskeiðið í námskeiðaröð náms-og starfsráðgjafa FSu haldið. Á námskeiðinu var farið í markmiðssetningu og ólíka námsstíla. Námskeiðið sem er fyrsta námskeiðið af fimm, var í umsjón Agnesar náms-og starfsráðgjafa.