Námskeið frá Tölvumiðstöð

Sigrún Jóhannsdóttir frá Tölvumiðstöð fatlaðra var með námskeið í FSu fimmtudaginn 30. september. Hún kenndi þátttakendum að búa til frásagnir með myndum, texta, hljóði og tali og kallaði það „Power Point lifandi frásagnir“. Starfsfólk starfsbrautar, leikskólakennarar og starfmenn Svæðisskrifstofu Suðurlands sóttu námskeiðið.