MYNDLISTARSÝNING OG ÚRVAL SKAPANDI ÁFANGA

Myndlistarnemar FSu halda nú áfram uppteknum hætti að setja upp sýningu í opinberu sýningarrými utan skólans. Nemendur í framhaldsáföngum fá þá þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum. Að þessu sinni eru það aðallega nemendur í módeláfanga á þriðja þrepi og einn til sem sýna í Listagjánni á Bókasafni Árborgar. Sýningin hefur verið opin frá 20. janúar en lýkur 20. febrúar næstkomandi. Verkin eru unnin á haustönn 2021 út frá skissum af lifandi módeli. Valdar skissur eru síðan unnar áfram í blýant, grafík, leir, vatnsliti og fjölbreytta blandaða tækni og lokaverkefni sem er unnið með akrýl á striga.

Aðrar fréttir af listalínu FSu eru þær að margt er þar á seyði og áhugi nemenda mikill. Boðið er upp á fjölbreytt úrval áfanga sem eru opnir öllum nemendum burtséð frà því hvort þeir eru á brautinni eður ei. Það er alltaf gefandi og gaman fyrir kennsluna að fá eldra fólk með áhuga á skapandi greinum inn í hinn hefðbundna nemendahóp. Meðal hins mikla úrvals af skapandi áföngum sem boðið er upp á í FSu ásamt myndlist má nefna stafræna smiðju, Fablab, kvikmyndun, leiklist, textíl hönnun, grafíska hönnun og grafíska miðlun. Veggjalistin færir út kvíarnar og á vorönninni verður veggurinn vallar megin  málaður. Það verður spennandi að sjá hvað nemendum dettur í hug að láta birtast þar í vor.

Myndlistarkennarar FSu

Lísa og Ágústa.