Myndlist á facebook

Nú verður hægt að fylgjast með framvindu myndlistarkennslu skólans á facebook, en Ágústa Ragnarsdóttir, myndlistarkennari hefur opnað sérstaka síðu á fésinu. Þar er ætlunin að sýna og segja frá hinu daglega lífi í myndlistastofunni og sýna vinnuna og framvinduna sem þar er. Og kannski eitthvað fleira skemmtilegt sem kann að reka á fjörur þar! Hvetjum við alla til að "læka" síðuna og fylgjast með. Síðan heitir FSu myndlist.