Mikilvægur samningur

Nýlega var skrifað undir samning við Byko á Selfossi um fjármögnun á byggingu timburhúss á Húsasmíðabraut. Það var Gunnar Bjarki Rúnarsson verslunarstjóri sem skrifaði undir fyrir hönd Byko ásamt skólameistara fyrir hönd FSu.

Samningurinn er mikill fengur fyrir skólann og nemendur í greininni þar sem hann felur í sér öll aðföng til byggingarinnar og að auki endurnýjun á handverkfærum sem slitna og rýrna við mikla notkun. Skólinn er afar þakklátur Byko fyrir þennan stuðning.