Meiri gleði á Bollastöðum

Föstudaginn 18. febrúar var komið að stjórnendum og náms-og starfsráðgjöfum að brjóta upp föstudagskaffitímann á Bollastöðum. Áhersla var lögð á tilbreytingu og uppbrot í hversdagsleikann. Starfsfólkið fékk kaffisopann sinn á Kaffi-Bolla þar sem kaffihúsastemmingin var alsráðandi með dúkum á borðum, kertaljósum, konfekti í skálum og ástarkveðjum frá stjórnendum og náms- og starfsráðgjöfum. Nú er boltinn hjá lífsleiknikennurum.