Lokaverkefni nemenda við Garðyrkjuskólann fyrsti viðkomustaður forseta Íslands í heimsókn í Hveragerði
29.04.2026
Stoltir verðandi skrúðgarðyrkjufræðingar ásamt Guðríði Helgadóttur, sviðsstjóra garðyrkjubrauta á Reykjum.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason heimsóttu Hveragerði þann 29. apríl í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Þeirra fyrsta verk í heimsókninni var að gróðursetja sitt hvort tréð í lokaverkefni þriggja nemenda af skrúðgarðyrkjubraut, þeirra Georgs Rúnars Elfarssonar, Jóhönnu Írisar Hjaltadóttur og Selmu Margrétar Karlsdóttur. Lokaverkefnið þeirra er á smágarðasvæði við aðalgötu bæjarins og er það hringlaga hellulögn með mynstri sem myndar blóm, sem nemendur kjósa að kalla Hellublóm. Nemendurnir hönnuðu og framkvæmdu verkið algerlega upp á eigin spýtur en fengu aðstoð frá garðyrkjudeild Hveragerðisbæjar eftir þörfum. Trén sem forsetahjónin gróðursettu eru af yrkinu pálmareynir 'Dodong' sem er blaðfallegt yrki sem fær sérlega fagra haustliti. Fjölmenni var við gróðursetninguna og forsetjahjónin léku á als oddi.
Garðyrkjuskólinn óskar nemendum hjartanlega til hamingju með glæsilegt verkefni.
Á fyrstu myndinni eru forsetahjónin ásamt Jóhönnu, Georg og Selmu, síðan eru þau félagarnir ásamt Árnýju Guðfinnsdóttur, garðyrkjustjóra Hveragerðis og loks aðstoðar Jóhanna Höllu forseta við gróðursetningu.










