LÍKAMINN Í LAUGINNI
Myndlistarnemar við Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa sett upp sýningu í Sundhöll Selfoss sem ber yfirskriftina Möndlað með mannslíkamann en þar er LÍKAMINN helsta viðfangsefnið. Myndlistaráfanginn er á 3. þrepi og aðeins kenndur fjórðu hverja önn. Hann kallast Maður og efni og er einn af framhaldsáföngum myndlistarkennslunnar.
Að sögn Ágústu Ragnarsdóttur kennara áfangans „fylgir öllum framhaldsáföngum myndlistar sú krafa að nemendur haldi sýningu í opinberu rými enda felst heilmikið nám í því að undirbúa sýningu í opinberu rými. Þá þurfa nemendur að skila greinargerð með hverju fullloknu verki þar sem þeir íhuga og rökstyðja í máli og myndum nálgun, stíl, aðferð, myndbyggingu og innihald svo eitthvað sé nefnt.”
Verk úr þremur af fjórum verkhlutum áfangans eru til sýnis. Í fyrsta verkhluta var unnið með lifandi módel (fyrirsætu) þar sem nemendur þjálfuðu sig í að teikna mannslíkamann frá öllum sjónarhornum í lengri og skemmri tíma. Í öðrum verkhluta þurftu nemendur að velja úr skissum fyrsta verkhlutans og vinna þær áfram. Þeir réðu bæði efni og innihaldi en mannslíkaminn varð að vera í forgrunni í nokkuð raunsærri túlkun.
Skúlptúr var viðfangsefni þriðja verkhlutans. Nemendur völdu sjálfir efnivið til úrvinnslu. Vinna átti mannsmynd raunsætt, afstrakt eða súrrealískt. Í fjórða og síðast verkhlutanum var unnið verk með tengingu við listasöguna. Þar urðu nemendur að sækja sér innblástur og velja hið minnsta eitt verk úr listasögunni þar sem mannslíkaminn kemur við sögu. Verkið varð að vera tvívítt en nemendur réðu efnivið. Stílbrigði gátu verið frá raunsæi og yfir í afstrakt.
„Útkoman er forvitnileg og falleg sýning þar sem fjölbreytt og áhugaverð verk eru til sýnis” segir Ágústa að lokum og bætir við að sýningin standi yfir frá 20. febrúar til og með 17. mars.
ár / jöz







