Lífsleikninemendur kynna áhugamál

Nemendur í lífsleikni kynna um þessar mundir fyrir gestum og gangandi áhugamálin sín. Verkefnið snýst um að nemendur velja áhugasvið og búa til bása framan við stofu 201 og svo er blásið til kynningar. Verkefnið hefur tekist vel og gaman að sjá hversu fjölbreyttar kynningarnar eru. Fjórir hópar eru í lífsleikni á vorönn, alls um 130 nemendur. Á myndinni má sjá tvo herramenn kynna knattspyrnu.