Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands – kynning

Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands er nú að hefja kynningarátak í framhaldsskólum. Áhersla verður lögð á að kynna nám í líffræði við HÍ.
   Næstkomandi fimmtudag 22. jan. kl. 10 – 12.30 verður kynning í FSu. Þá munu fulltrúar frá félagi líffræðinema vera með stutta kynningu í líffræðitímum og sitja fyrir svörum í miðrýminu. Nemendur eru hvattir til að spjalla við háskólanemana um líffræðinám.