Líður að annarlokum

Nú líður að lokum kennslu, en aðeins fjórir kennsludagar eru eftir af þessu skólaári. Próf hefjast fimmtudaginn 2. maí, en síðasti prófdagur er 16. maí sem er sjúkraprófsdagur. Nemendur eru minntir á að skoða próftöfluna vel, hana má sjá hér til vinstri á vefnum, en hana má einnig sjá hér. Mikilvægt er að mæta tímanlega í próf og skipuleggja próflestur vel.

Lokað verður fyrir aðgang að Innu á prófatímanum, en hún opnar aftur 20. maí.

Prófsýning fer fram 21. maí kl. 12:30 til 14:00. Nemendur eru hvattir til að mæta því þetta er eina tækifærið til að skoða prófaúrlausnir og skila bókum í bóksölu. Skólaakstur verður þennan dag.