Leynivinadagar

Um þessar mundir gengst stjórn starfsmannafélags FSu (Steinastjórnin) fyrir leynivinadögum meðal starfsmanna skólans. Hver þátttakandi fær úthlutað einum leynivini og tekur að sér að gleðja hann í þrjá daga, frá miðvikudegi til föstudags. Þá um kvöldið verður Baðstofukvöld í Tryggvaskála þar sem hulunni verður meðal annars  svipt að hinum leyndu vinum. Á myndinni sést leynivinakassinn sem inniheldur nöfn hinna væntanlegu launvina.