Keppa næst við MR

Nú er ljóst hvaða lið etja kappi í átta liða úrslitum í Gettu betur. Okkar menn drógust á móti liði Menntaskólans í Reykjavík, en lið þess skóla þykja yfirleitt standa sig nokkuð vel í keppninni þó ekki hafi þau alltaf sigrað. Viðureign FSu og MR fer fram í Sjónvarpinu laugardaginn 5. mars.