Karlavígin að falla?

Örfáar stúlkur hafa hingað til stundað námi í verknámsgreinunum í Hamri, þ.e. málmiðn, rafiðn og Kristján með sínum nemabyggingagreinum, og lengi vel einokuðu strákarnir rafiðnadeildina. Þetta virðist eitthvað vera að breytast því nú er ein stúlka í grunnnámi í rafiðnum og þrjár á öðru ári, auk þess sem ein stúlka er í grunnnámi byggingagreina. Áfram stelpur!