Karfa: FSu vann

 

 Körfuboltalið FSu sigraði Njarðvíkinga á útivelli á föstudaginn, með 83 stigum gegn 82. FSu náði forystunni í síðari hálfleik en Njarðvíkingar jöfnuðu undir lokin. Vésteinn Sveinsson tryggði sigurinn úr vítaskoti í blálokin.

Þetta er annar sigur FSu gegn Njarðvíkingum í vetur. Liðið er eftir sem áður í fallbaráttu i deildinni, nú með 8 stig eins og Stjarnan og Þór Ak., en á botninum er Skallagrímur með 2 stig.